Hvað hafa aðrir að segja?
Reynsla annarra
Ég mæli hiklaust með hugleiðslu frá Konráði. Ótrúlega róandi og um leið orkugefandi stund.
Ég mæli innilega með hugleiðslustundum Konráðs. Þær voru falleg og kærkomin leið til að enda vinnuvikuna, ná ró og fara afslappaðri inn í helgina. Hlý og notaleg upplifun í öruggri leiðsögn.
Um Núvi
Kyrrðin er
alltaf nærri.
Núvi er rólegt rými fyrir hugleiðslu á íslensku. Engin frammistaða, engin pressa — bara augnablikið eins og það er.
Hlustaðu á hugleiðsluAf hverju Núvi?
Augnablikið er hér.
Dagarnir geta fyllst hratt. Núvi skapar einfalt rými til að hægja á, finna andardráttinn og mæta því sem er.
Veldu hugleiðslu, komdu þér vel fyrir og leyfðu röddinni að leiða þig — hvort sem þú hefur þrjár mínútur eða meira.

Um Konráð
Röddin á bak við Núvi.
Rödd Núvi er Konráð Jónsson sem byrjaði að hugleiða fyrir mörgum árum til að koma böndum á kvíðann.
Í dag miðlar Konráð hugleiðslu á hlýjan og aðgengilegan hátt — fyrir einstaklinga, hópa og vinnustaði sem vilja skapa meiri ró og nærveru í dagsins önn.
Bóka hugleiðsluÞað hefur verið einstaklega notalegt að sitja reglulegar hugleiðslustundir með Konna í vinnunni. Fastur liður á föstudögum og í raun heilög stund til að stimpla sig örlítið út og ná sterkri jarðtengingu. Hann býður bæði upp á fasta dagskrárliði en nær einnig að brjóta það upp með einhverju nýju í hvert skipti. Konni er vissulega með andlit fyrir sjónvarp en útvarpsröddin góða leiðir mann áfram í öndun, slökun og líkamskönnun. 11 af 10 mögulegum frá mér alla daga, alltaf.
Hafa samband
Sköpum ró saman.
Viltu bóka hugleiðslu fyrir hópefli á vinnustað, viðburð eða annað tilefni? Sendu Konráði línu og finnið stund sem hentar.
konradj@gmail.com